Innlent

Hreyfing ESB-sinna tekur til starfa

Sterkara Ísland verður til húsa í Skipholti 50a. Ekki verða launaðir starfsmenn heldur er ætlunin að sjálfboðaliðar manni skrifstofuna.
Sterkara Ísland verður til húsa í Skipholti 50a. Ekki verða launaðir starfsmenn heldur er ætlunin að sjálfboðaliðar manni skrifstofuna.

Ný hreyfing þeirra sem aðhyllast aðild Íslands að Evrópusambandinu tekur til starfa á föstudaginn.

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, er í hópi um 100 manna sem hafa undirbúið stofnunina. Margir þeirra stóðu að undirskriftasöfnuninni Sammála fyrir síðustu alþingiskosningar, og hafa nú stofnað félag sem heitir Sterkara Ísland – þjóð meðal þjóða.

Jón Steindór segir að Sterkara Ísland eigi að verða grasrótarsamfélag þeirra sem vilja vinna að aðild Íslands að Evrópusambandinu með því að stuðla að hagstæðum aðildarsamningi og upplýstri umræðu um aðildina. Engir sérstakir talsmenn verði kosnir og lítil áhersla verði lögð á formfestu og stjórnir, nefndir og ráð eins og algengast er í félögum. „Við viljum láta þetta vera sjálfsprottið og grasrótarlegt,“ segir Jón Steindór. „Þannig verður það að vera því á endanum er það fólkið sem tekur þessa ákvörðun en ekki einhverjar stjórnir eða talsmenn.“

Starfsemin verður kostuð með frjálsum fram­lögum þeirra sem vilja styðja málefnið. - pg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×