Aukið svigrúm til að grípa inn í samruna 26. janúar 2010 04:00 Kæra Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til að aðhafast vegna samruna Teymis og Vestia á síðasta ári. Síminn kærði þá niðurstöðu til Áfrýjunarnefndar um samkeppnismál, sem úrskurðaði að Samkeppniseftirlitið skuli setja skilyrði fyrir samrunanum.Fréttablaðið/Anton
Samkeppniseftirlitið hefur rýmri heimildir en áður var talið til að grípa inn í samruna, og þar með meiri möguleika til að taka á samkeppnislegum vandamálum sem tengjast eignarhaldi bankanna á fyrirtækjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar um samkeppnismál vegna samruna Vestia og Teymis, sem fjallað var um í Fréttablaðinu í gær. Þar staðfestir nefndin samrunann, en leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að setja honum ákveðin skilyrði. Eftirlitið mun í kjölfarið taka samrunann fyrir að nýju. Það er mat áfrýjunarnefndarinnar að Samkeppniseftirlitið hafi heimildir til að setja skilyrði um að fyrirtæki séu yfirtekin af bönkunum, segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins. Þau skilyrði geti til að mynda verið að fyrirtæki verði seld innan tiltekins tíma, og að sjálfstæði þeirra verði tryggt. Vestia er dótturfélag Landsbankans, sem stofnað var til að fara með eignarhald þeirra fyrirtækja sem bankinn þarf að taka yfir. Teymi á meðal annars símafyrirtækið Vodafone. Niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar eyðir óvissu um samkeppnislegt rekstrarumhverfi þeirra fyrirtækja sem Landsbankinn fer með í gegnum Vestia, segir í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að kappsmál sé fyrir bankann að reynt verði eftir föngum að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af eignarhaldi banka á íslenskt atvinnulíf við þær sérstæðu kringumstæður sem nú ríki. Jafnframt verði að virða hagsmuni bankans af því að endurheimta lán til fyrirtækjanna. Síminn kærði þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að aðhafast ekki vegna samruna Vestia og Teymis til áfrýjunarnefndarinnar. Síminn krafðist þess að nefndin gripi til íhlutunar í samrunann, en til vara að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins yrði felld úr gildi og lagt fyrir eftirlitið að taka málið upp aftur. Áfrýjunarnefndin hafnaði aðalkröfunni, en féllst á varakröfuna.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira