Þurfum að leita jafnvægis 26. janúar 2010 05:00 Ásmundur Stefánsson
Meiri aðgreining milli bankanna og fyrirtækja sem þeir þurfa að taka yfir eykur líkurnar á því að bankarnir setji fyrirtækin í þrot eða stutt söluferli í stað þess að taka þau yfir, segir Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans. Hvort tveggja sé ógnun við samkeppni. Hann segir of snemmt að segja til um áhrif úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Nefndin fól Samkeppniseftirlitinu að fjalla á ný um samruna Teymis og Vestia, dótturfélags bankans. Ásmundur segir að finna verði ásættanlega aðferðafræði fyrir banka sem þurfi að taka fyrirtæki yfir. Það sé mikilvægt fyrir alla viðskiptabankana. Til dæmis hafi ítrekað komið upp að fyrirtæki í samkeppni við félag sem bankinn hefur þurft að taka yfir sé einnig í viðskiptum við Landsbankann. Ekki er ágreiningur milli samkeppnisyfirvalda og Landsbankans um markmiðin, segir Ásmundur. Samstaða verði að vera um aðferðirnar. Allir séu að læra hvernig best sé að fara með þessi erfiðu mál við þær óvenjulegu aðstæður sem nú séu uppi. Ekki er ljóst hvort hugmyndir um að skilyrða samruna við sölu yfirtekins fyrirtækis innan ákveðins tíma eru góðar eða slæmar, segir Ásgrímur. Aðstæður séu þannig að erfitt sé að selja fyrirtæki, og of þröngur tímarammi geti því verið skaðlegur.- bj
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira