Innlent

Tannheilsu íslenskra barna hrakar stöðugt

Tannlæknar hafa verulegar áhyggjur af því að tannheilsu íslenskra barna hefur hrakað verulega á undanförnum árum.
Tannlæknar hafa verulegar áhyggjur af því að tannheilsu íslenskra barna hefur hrakað verulega á undanförnum árum.

Fyrsti dagur árlegrar tannverndarviku er í dag. Í ár verður sjónum sérstaklega beint að börnum. Ekki er vanþörf á því, en rannsóknir sýna að tannheilsa íslenskra barna er mun verri en annarra barna á Norðurlöndum.

„Undanfarið höfum við horft upp á að tannheilsu íslenskra barna hrakar verulega og það er sérstaklega sorglegt að á sama tíma eru heimtur barna til tannlækna að skila sér mjög illa,“ segir Helgi Hansson barnatannlæknir. Hann segir helstu ástæðurnar sem tannlæknar sjái fyrir því að endurgreiðsluhlutfall ríkisins hafi jafnt og þétt lækkað. Tannheilsa barna hafi orðið illilega fyrir barðinu á niðurskurðarhnífnum.

Helgi segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um nauðsyn þess að mæta með börn í reglubundna skoðun til tannlæknis. „Það eru margir foreldrar sem standa sig vel í þessu. Aftur á móti eru þeir of margir sem draga það og sleppa því jafnvel alveg og lenda svo í vítahring síðar.“

Þá komi það tannlæknum á óvart að foreldrar mæti jafnvel ekki með börn sín í fría forvarnaskoðun, sem öll börn á aldrinum þriggja, sex og tólf ára eiga rétt á. „Það kemur aftan að okkur að heimtuhlutfallið gæti verið mun betra í þeim tilfellum þegar skoðunin er frí.“

Helgi segir það tiltölulega einfalt verkefni að bæta tannheilsu barna. Þau eigi að borða minni sykur og bursta tennurnar kvölds og morgna. „Ef við bara gætum bætt þessi tvö atriði gætum við bætt tannheilsu barna til muna. Sérstaklega höfum við tannlæknar verið að benda á þennan falda sykur. Margir borða sætindi sex daga vikunnar og nammi á nammi­dögum. Það er nefnilega fleira sætindi en nammi, til dæmis margir drykkir, kökur og margar tegundir af morgunkorni.“

Í tilefni af tannverndarvikunni hefur Lýðheilsustöð gert lifandi myndefni um umhirðu barnatanna, fyrir foreldra og aðra aðstandendur barna. Það má nálgast á vef Lýðheilsustöðvar, á slóðinni http://www.lydheilsustod.is/utgafa/lifandi-efni/tannvernd/. Efnið verður einnig gefið út á DVD-diski.

holmfridur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×