Nokkur vafasöm ummæli stjórnmálamanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. september 2010 09:00 Þórunn Sveinbjarnardóttir vildi að frændi fréttamanns hoppaði upp í rassgatið á sér. Mynd/ Stefán.
Þau vöktu athygli, orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur, sem sagði við fréttamann Ríkisútvarpsins í gær að hann skyldi segja frænda sínum að hoppa upp í rassgatið á sér. Þótt mörgum finnist ummælin þess eðlis að vart sé hægt að hafa þau eftir, er þetta síður en svo í fyrsta sinn sem ummæli íslenskra stjórnmálamanna vekja eftirtekt. Vísir rifjaði upp nokkur ummæli sem hefðu ef til vill best verið látin ósögð. Og þó…. Við byrjum á einum af þekktustu ummælum íslensks stjórnmálamanns á 20. öldinni. Skítlegt eðli„Ég hélt satt að segja ekki, og vona að mér fyrirgefist að ég segi það, að svona skítlegt eðli væri inni í hæstvirtum forsætisráðherra, en það kom greinilega hér fram." Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi þingmaður, í fyrirspurnartíma á Alþingi 1992 þegar verið var að ræða greiðslur fjármálaráðuneytisins vegna auglýsinga. Davíð Oddsson var þá forsætisráðherra. Heyrir Árna hrista hausinn„Mér er alveg sama þó ég heyri hæstvirtan þingmann Árna Johnsen hrista höfuðið. Ég er þessarar skoðunar." Össur Skarphéðinsson þingmaður í utandagskrárumræðum á Alþingi um samgöngumál á Vestfjörðum í nóvember 1995. Gunga og drusla„Ég hlýt að líta svo á og það skal þá standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig." Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, í umræðum um fjölmiðlafrumvarp forsætisráðherra í maí 2004. Afturhaldskommatittsflokkur„En Samfylkingin er eins og gamall afturhaldskommatittsflokkur og ætlar sér aldrei að verða stór og getur þess vegna ekki stutt verðugt verkefni eins og þetta." Davíð Oddsson, þáverandi utanríkisráðherra, í umræðum um störf þingsins í nóvember 2004. Verið var að ræða stuðning Íslands við Íraksstríðið. Æ, æ.....„You ain't seen nothing yet." Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í ræðu um útrás íslenskra kaupsýslumanna við opnun bækistöðvar Avion Group í Bretlandi í febrúar 2005. Fífl og dóni„Hann er algjört fífl þessi maður, og dóni sko." Geir Haarde, þáverandi forsætisráðherra, um Helga Seljan fréttamann, á blaðamannafundi í Iðnó í október 2008. Fábjánar á Íslandi„Það eru svona um það bil 5% af þjóðinni fábjánar. Það er miklu meira en 1100." Þráinn Bertelsson í viðtali á Bylgjunni í mars 2010. Hoppa upp í rassgatið á sér„Segðu frænda þínum að hoppa upp í rassgatið á sér." Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður, við Ægi Þór Eysteinsson fréttamann, þegar verið var að ræða fyrirhugaðar breytingar á ríkisstjórninni í september 2010.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira