Innlent

Vélarbilun í fiskibáti

Vélarbilun varð í 130 tonna fiskibáti, með nokkurra manna áhöfn, þegar hann var staddur norður af Garðskaga á Reykjanesi í nótt.

Skipstjóri kallaði eftir aðstoð björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði, sem dró bátinn til Sandgerðis.

Gott veður var á þessum slóðlum og stóð vindur af landi, þannig að bátinn hefði ekki rekið upp í fjöru, þótt aðstoð hefði ekki borist strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×