Innlent

Auglýsir eftir vitni að árekstri

Atvikið varð á bílastæði við Kringluna. Bíllinn á myndinni tengist atvikinu ekki.
Atvikið varð á bílastæði við Kringluna. Bíllinn á myndinni tengist atvikinu ekki.
Maður sem varð fyrir því óláni að ekið var á bílinn hans á bílastæði á neðri hæð Kringlunnar þann 20. desember síðastliðinn auglýsir eftir vitni að atburðinum. Atvikið varð með þeim hætti að Nissan Micru var bakkað á BMW. Nú lýsir eigandi BMW bifreiðarinnar eftir ungri konu sem sá áreksturinn. Hún er beðin um að hringja í Arnar Pálsson í síma 8931796.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×