Innlent

Þokast í rétta átt á Lundúnafundunum

Sendiráð Íslands í Lundúnum Fundir Icesave-samninganefndanna fara fram í íslenska sendiráðinu. mynd/úr safni
Sendiráð Íslands í Lundúnum Fundir Icesave-samninganefndanna fara fram í íslenska sendiráðinu. mynd/úr safni

Heldur meiri bjartsýni gætir hjá íslenskum stjórnvöldum eftir Icesave-fund gærdagsins heldur en eftir fundinn á mánudag.

„Þetta gekk í sjálfu sér ágætlega,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi og bætti við að fundurinn í gær hafi „fært þetta áfram“.

Steingrímur sagði eftir fundinn á mánudag að Bretar og Hollendingar hefðu ekki verið hrifnir af því sem íslenska samninganefndin bar á borð. Ekki fæst uppgefið hvað fram kom í gær sem breytir tóninum í ráðamönnum.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að nýjustu fréttir af samningaviðræðunum veki vonir um árangur.

Frekari fundir hafa ekki verið ákveðnir en í dag stendur til að vinna úr því sem fram hefur komið og skiptast á frekari upplýsingum. Steingrímur segist vera vongóður en varar engu síður við of mikilli bjartsýni.

Fundir samninganefnda Íslands annars vegar og Bretlands og Hollands hins vegar hafa farið fram í íslenska sendiráðinu í Lundúnum. Fimm manna samninganefnd hefur setið þá fyrir Íslands hönd en henni til aðstoðar eru Kanadamaðurinn Don Johnston, fyrrverandi framkvæmdastjóri OECD, og sérfræðingar ráðgjafarfyrirtækisins Hawkpoint og lögmannsstofunnar Ashurst.

Að sögn Steingríms hefur nefndin ekki sérstakt erindisbréf upp á vasann en veganesti hennar er skýrt.

Eftir því sem næst verður komist hafa Bretar og Hollendingar ekki lagt fram sérstakan samningsramma af sinni hálfu. Heimildir Fréttablaðsins herma þó að þeir setji það skilyrði að ákvæði EES-samningsins um lágmarksinnstæðutryggingu verði viðurkennt.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fór í gær ítarlega yfir stöðuna í Icesave-málinu með sænskum starfsbróður sínum, Carl Bildt. Gerði hann Bildt grein fyrir nýrri nálgun Íslendinga í málinu. Áður hefur Össur farið yfir málið með utanríkisráðherrum Litháens og Spánar en sá síðarnefndi gegnir formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins.

Össur hefur líka rætt málið við Stefan Fule, nýjan stækkunarstjóra ESB.

bjorn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×