Lítið um efndir ráðamanna 4. mars 2010 05:00 Jón Steindór Valdimarsson „
Það sígur áfram á ógæfuhliðina. Mannvirkjagerðin er á hliðinni og fátt sem bendir til að sú skúta fari að rétta sig af." Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, um ástand mála í byggingariðnaði. Gjaldþrot í greininni eru algeng og uppsagnir hjá þeim sem eftir standa tíðar. Sem dæmi má nefna að þrettán var sagt upp hjá verktakafyrirtækinu Magna í síðustu viku og var haft eftir forstjóra félagsins á RÚV að líklega yrði þeim sem eftir stæðu sagt upp um næstu mánaðamót. Jón Steindór átelur stjórnvöld fyrir seinagang. Til hafi staðið að bjóða út tilteknar vegaframkvæmdir í heilt ár án þess að nokkuð hafi gerst. Sama eigi við um samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli. „Hún var fyrsta framkvæmdin sem átti að ráðast í eftir hrun af því að hún þótti svo handhæg. Enn er hún bara í kollinum á einhverjum. Það er lítið um efndir," segir Jón Steindór. Eitthvað er um að fyrrverandi starfsmenn íslenskra verktakafyrirtækja hafi leitað eftir vinnu í útlöndum en Jón Steindór segir ekki hlaupið að slíku. „Aðrir hafa orðið fyrir búsifjum þótt ekki sé það í líkingu við það sem hefur orðið hér. Danir tala um 25 prósenta samdrátt og eru í öngum sínum en ætli það séu ekki 25 prósent eftir hjá okkur." - bþs
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Útlendingum fækkað það sem af er ári Innlent Fleiri fréttir Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Sjá meira