Enn meiri samdráttur í spilunum 19. mars 2010 02:00 Þórarinn G. Pétursson
Dragist samningar um Icesave enn á langinn má gera ráð fyrir að atvinnuleysi, auk samdráttar landsframleiðslu og fjárfestingar, verði mun meira en Seðlabankinn hefur gert ráð fyrir í spám sínum. Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, benti á það þegar kynnt var ákvörðun peningastefnunefndar bankans um vexti á miðvikudag, að í síðustu hagspá bankans, Peningamálum, sem út komu í janúar, væri að finna vísbendingu um hvers væri að vænta í umfangi samdráttarins, dragist enn að Icesave leysist. „Sem dæmi má nefna að tefjist stórframkvæmdir fram á seinni hluta næsta árs og verði önnur fjárfesting á þessu ári um 10 prósentum minni en gert er ráð fyrir, gæti fjármunamyndun dregist saman um fjórðung á þessu ári og landsframleiðsla um 5 prósent. Atvinnuleysi yrði jafnframt hátt í tveimur prósentum meira í lok ársins en gert er ráð fyrir í grunnspánni,“ segir í Peningamálum, en grunnspá bankans gerði ráð fyrir tiltölulega skjótri úrlausn Icesave-mála. Í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka í gær segir að vonir landsmanna um að lausn sé á næsta leiti virðist fara þverrandi. „Enda hefur lausn deilunnar nú verið í sjónmáli í marga mánuði án þess að endahnútur sé bundinn á málið.“ Bent er á að samningaviðræður um Icesave hafi ekki enn hafist að nýju eftir að upp úr slitnaði í byrjun þessa mánaðar. - óká
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Fleiri fréttir Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Sjá meira