Innlent

Á fimmta hundrað þreyttu íslenskupróf í fyrra

Skráning í íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt hefst 1. mars en prófið fer fram 31. maí. Á fimmta hundrað þreyttu prófið í fyrra.

Umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verða að hafa staðist próf í íslensku samkvæmt breytingum sem gerðar voru á reglum um íslenskan ríkisborgararétt sem tóku gildi 1. janúar 2009. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið, þá dóms- og kirkjumálaráðuneytið, fól Námsmatsstofnun að sjá um framkvæmd prófanna sem haldin voru í tvígang á síðasta ári, í júní og desember. Alls þreyttu 476 próf árið 2009, flestir frá Filippseyjum, Póllandi og Taílandi.

Skráning fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Próftökugjaldið er 7000 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×