Flugumferðarstjórar boða til verkfalls 2. mars 2010 16:40
Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boða til vinnustöðvunar félagsmanna sinna dagana 10. mars til 19. mars 2010, alls fimm sinnum í fjórar klukkustundir samfellt í hvert skipti. „Félagið leggur þannig áherslu á kröfur sínar í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning, þar sem hvorki gengur né rekur," segir í tilkynningu frá félaginu. Verkfallsboðunin nær til allra starfandi flugumferðarstjóra hjá Keflavíkurflugvelli ohf. og Flugstoðum ohf. „Aðalfundur Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) 22. febrúar 2010, samþykkti að fela stjórn og trúnaðarráði félagsins að hefja þegar í stað undirbúning atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls flugumferðarstjóra. Stjórn og trúnaðarráð Félags íslenskra flugumferðarstjóra gerðu tillögu um nokkrar sjálfstæðar fjögurra klukkustunda vinnustöðvanir og voru þær samþykktar einróma í almennri atkvæðagreiðslu 25.-26. febrúar síðastliðinn. Á kjörskrá voru 105 félagsmenn, kjörsókn var 68%." Þrátt fyrir að flugumferðarstjórum, sem vinna hjá Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli ohf., beri ekki skylda til að sinna neinum störfum í verkfalli hefur FÍF ákveðið að flugumferðarstjórar sinni störfum í boðuðum verkföllum með eftirfarandi hætti: 1. Séð verður til þess að nægilega margir flugumferðarstjórar verði í flugturnum á Reykjavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli og í flugturni og aðflugi á Keflvíkurflugvelli til að sinna sjúkra- og neyðarflugi á meðan verkfall stendur yfir. Flugumferðarstjórarnir sinna með öðrum orðum eingöngu sjúkra- og neyðarflugi. 2. Veitt verður full þjónusta í úthafssvæðinu, þ.e. flugumferðarstjórar, sem hafa skipulagðar vaktir þessa daga, sinna störfum sínum með venjulegum hætti að því undanskyldu að flugvélar, sem ætla að lenda á íslenskum flugvöllum á meðan verkfall varir, fá ekki heimild til flugs inn á svæðið nema um neyðartilvik eða sjúkraflug sé að ræða. Heimilt er að bæta við flugumferðarstjórum, ef nauðsyn krefur, vegna umferðar í úthafssvæðinu. Þessi undanþága nær eingöngu til starfa flugumferðarstjóra sem sinna flugumferðarstjórn í flugstjórnarmiðstöðinni, þar með talinna varðstjóra og aðalvarðstjóra. Dagsetningar verkfallsins: Verkfall Dagsetning Vikudagur Frá - til 1 10.03.2010 miðvikudagur 07:00 - 11:00 2 12.03.2010 föstudagur 07:00 - 11:00 3 15.03.2010 mánudagur 07:00 - 11:00 4 17.03.2010 miðvikudagur 07:00 - 11:00 5 19.03.2010 föstudagur 07:00 - 11:00
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Erlent Fleiri fréttir Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Sjá meira