Leiðréttingaleið bankanna órökrétt 26. mars 2010 18:52
Fólk með yfirveðsett heimili sem þiggur 110% leiðréttingarleið bankanna gæti þurft að greiða hundruð þúsunda króna á mánuði í skatta af niðurfellingunni verði hugmyndir stjórnvalda um skattlagningu afskrifta að veruleika. Órökrétt að hjálpa fólki fyrst upp á núllið, til að skatturinn keyri það svo aftur niður fyrir núllið segir Pétur Blöndal þingmaður sjálfstæðismanna. Í Viðskiptablaðinu í gær birtist grein eftir Ástu Dís Óladóttur, forseta viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Ásta Dís tekur dæmi og það hljómar svona: Einstaklingur fékk lán fyrir 80% af verði fasteignar, tæpar 39 milljónir króna. Uppreiknað stendur lánið í tæpum 85 milljónum króna. Leiðréttingin, miðað við 110% leið bankanna, myndi þá hljóða upp á 43 milljónir. Samkvæmt útreikningum Ástu Dísar sem byggðir eru á frumvarpsdrögum frá fjármálaráðuneytinu þarf þessi einstaklingur að greiða samtals rúma þrettán og hálfa milljón í skatt af niðurfellingunni. Það þýðir að manneskja sem ræður ekki við skuldir sínar, þyrfti þá að greiða skattinum 378 þúsund krónur á mánuði í þrjú ár, auk þess að greiða af láninu sjálfu. Margir hafa gagnrýnt þessa leið, m.a. Hagsmunasamtök heimilanna, Talsmaður neytenda og hagfræðiprófessorar. Pétur Blöndal, þingmaður í efnahags- og skattanefnd, tekur í sama streng. „Ég held að þingmenn sjái strax hvað þetta er órökrétt að hjálpa fyrst fólki upp að núllinu og síðan kemur skatturinn og keyri það aftur niður. Það er engin lausn þannig að ríkið þarf að taka þátt í þessu," segir Pétur. Pétur bendir á að hingað til hafi hækkun og lækkun á húsnæðisverði ekki verið talin til tekna eða gjalda hjá skattinum. Heldur ekki hækkun og lækkun á skuldum vegna verðbóta.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Fleiri fréttir Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Sjá meira