Lögreglan verður að gæta meðalhófs við fíkniefnaleit 18. febrúar 2010 06:00 tækniskólinn Umboðsmaður Alþingis hefur leitað skýringa hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu varðandi fíkniefnaleitina í Tækniskólanum.fréttablaðið/Pjetur „
Lögregla hefur ákveðnar heimildir til leitar. Þarna reynir á hvort tiltekið ákvæði sakamálalaganna á við. Sé það svo verður að fara að meðalhófssjónarmiðum, í ljósi þess að um sé að ræða aðgerð sem felur í sér íhlutun í friðhelgi einstaklingsins.“ Þetta segir Þórður Sveinsson, lögfræðingur Persónuverndar. Umboðsmaður Alþingis, Róbert R. Spanó, hefur óskað eftir tilteknum upplýsingum og skýringum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna fíkniefnaleitar í Tækniskólanum í Reykjavík fyrir réttri viku. „Ég óska þess að vera upplýstur um aðdraganda þess að leit var gerð í Tækniskólanum í Reykjavík 11. febrúar sl. og eftir nánari upplýsingum um það hvernig sú leit fór fram,“ segir í bréfi umboðsmanns. „Óska ég þá meðal annars eftir upplýsingum um hvert hafi verið tilefni leitarinnar og hvaða gögn og upplýsingar lögreglan hafi lagt til grundvallar þegar tekin var ákvörðun um að leita í Tækniskólanum í Reykjavík umræddan dag. Hef ég jafnframt í huga hvort leitað hafi verið „á nemendum“ eins og kemur fram í einni af ofantilvitnaðri frétt, í skápum þeirra, skólatöskum o.þ.h.“ Þá óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um á hvaða lagagrundvelli umrædd aðgerð byggðist á og þá meðal annars að virtri grundvallarreglu stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs. Hann vísar annars vegar til laga um meðferð sakamála í því tilliti og óskar eftir „…nánari rökstuðningi á því hvernig skólastofnun af því tagi, sem var vettvangur umræddrar aðgerðar, gæti talist „[húsakynni] sem [væru] opin almenningi eða hver og einn geti átölulaust gengið um“. „Við munum upplýsa umboðsmann Alþingis um öll þau atriði sem hann spyr um,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um málið. jss@frettabladid.is
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira