Íslendingar minntir á eldri samninga 23. janúar 2010 06:00 skeggrætt Ekkert mál hefur verið meira rætt á Alþingi en Icesave. Bretar og Hollendingar vilja tryggingu fyrir því að nýjum samningum verði ekki breytt, komi til þeirra.fréttablað/gva
Forsenda þess að Bretar og Hollendingar fáist að samningaborðinu að ný, áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur, er að tryggt sé að slíkir samningar haldi en fari ekki í margra mánaða umræður með tilheyrandi breytingum á Alþingi. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að viðsemjendur leggi mikið upp úr þessu og vísi til eldri samninga sem Íslendingar hafi undirritað, en ekki staðið við. Bretar og Hollendingar leggja því mikla áherslu á að stjórnmálaflokkarnir hér heima nái saman áður en til samninga komi, fari málið svo langt. Þeir hafa engan áhuga á að semja aðeins við ríkisstjórnina. Líkt og kom fram í Fréttablaðinu í gær eru viðræður stjórnmálaflokkanna ekki það langt komnar að markmið nýs samnings liggi fyrir. Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sagði allt á huldu um hver yrðu markmiðin í slíkum samningum. Ekki væri til dæmis ljóst hvort samstaða væri um að greiða lágmarksinnistæðu, 20.887 evrur. Bretar og Hollendingar vísa til þess að Íslendingar hafi oft sagst myndu virða þær skuldbindingar. Því munu þeir, samkvæmt heimildum blaðsins, ekki falla frá þeirri kröfu. Þá standa eftir atriði eins og vextir, lánstími og forgangur að kröfum, svo eitthvað sé nefnt. Vonast er til að málin skýrist á allra næstu dögum, jafnvel um helgina. Fréttablaðið hefur fyrir því heimildir að náist ekki niðurstaða fljótlega verði fallið frá samningum og horft til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fara mun fram 6. mars. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira