Segir Davíð hafa bjargað Hrafni og Myrkrahöfðingjanum 4. nóvember 2010 12:30 Hrafn og Davíð á forsýningu Opinberun Hannesar, sem Hrafn frumsýndi nokkrum árum eftir atburðina sem Einar lýsir í bók sinni.
Einar Kárason segir í nýrri bók sinni að Davíð Oddsson hafi tryggt aukafjármögnun svo Hrafn Gunnlaugsson gæti gert kvikmyndina Myrkrahöfðingjann. Formaður stjórnar Kvikmyndasjóðs á þessum tíma telur að Einar fari ekki rétt með staðreyndir málsins. „Það er náttúrlega svolítið um liðið en þetta er ein af þessum minningum sem maður átti og vildi koma á prent," segir Einar Kárason rithöfundur. Einar hefur sent frá sér bókina Mér er skemmt, þar sem hann segir sögur úr eigin lífi. Einn athyglisverðasti kafli bókarinnar fjallar um störf Einars í stjórn Kvikmyndasjóðs Íslands á síðustu öld. Einar segir frá samstarfsfólki sínu í stjórninni og hvernig starfið hafi gengið. Hann segir frá kveðjuhófi sem haldið var fyrir Bryndísi Schram á Hótel Borg en að hófinu loknu bauð Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og þáverandi formaður stjórnar Kvikmyndasjóðs, til áframhaldandi gleði á heimili sínu. Talið barst að Myrkrahöfðingjanum, kvikmynd sem Hrafn Gunnlaugsson var með í bígerð, en hún hafði fengið hæsta vilyrði fyrir styrk sem veittur hafði verið hjá sjóðnum. Hrafn taldi hins vegar ómögulegt að gera myndina nema meira fjármagn fengist.Vilhjálmur Egilsson segist ekki geta kvittað upp á frásögn skáldsins.Einar segir frá: „Og nú sitjum við úti í horni stofunnar, ég og Villi og Ari [Kristinsson], og Villi segir okkur frá því að hann hafi rætt málin undir fjögur augu við forsætisráðherrann, sem var auðvitað hæstráðandi til sjós og lands þar í þinginu, og sá hefði sagt að hann væri tilleiðanlegur að beita sér fyrir því að Kvikmyndasjóður fengi hækkun upp á tuttugu og fimm eða þrjátíu milljónir ef við í stjórninni gætum tryggt að sú hækkun rynni öll til Myrkrahöfðingjans á næsta ári. En svo væri auðvitað nokkuð ljóst að sjóðurinn yrði ekki lækkaður aftur, svo að allir myndu njóta góðs af þessum díl í framtíðinni." Allir hafi verið sammála um þennan ráðahag en sérstök úthlutunarnefnd sá alfarið um að ákveða hverjir hlytu styrki. Því hafi verið ákveðið að tryggja að meðlimir úthlutunarnefndarinnar myndu veita Myrkrahöfðingjanum styrkinn. Segir Einar að Vilhjálmur hafi tryggt stuðning tveggja fulltrúa af þremur í úthlutunarnefndinni; þeirra Markúsar Arnar Antonssonar og Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur. Ekki þurfti að leita til þriðja fulltrúans, Laufeyjar Guðjónsdóttur, þar eð meirihluti var tryggður.Bók Einars heitir Mér er skemmt og þar segir hann sögur úr eigin lífi.Vilhjálmur Egilsson sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki geta kvittað upp á frásögn skáldsins. „Ég er nú ekki alveg svo minnisgóður að ég geti staðfest þetta, sérstaklega ef þetta var eftir kveðjuveislu síðla nætur," segir Vilhjálmur léttur í bragði. „Ætli röðin hafi ekki verið sú að við fengum hækkun í sjóðinn, sem var heilmikið mál og margir hafa notið góðs af, og svo var þetta spurning um hvað úthlutunarnefndin ætlaði að gera. Myndin var komin með vilyrði fyrir styrk en það var ekki séns að gera hana fyrir það sem var í sjóðnum. Og það sama var með fleiri myndir, við vorum alveg komin í strand með nokkrar myndir. Þetta var spurning um hvort úthlutunarnefndin blési þessar myndir af eða tryggði það fjármagn sem þurfti til að gera þær. Menn horfðust bara í augu við raunveruleikann." hdm@frettabladid.is
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Fleiri fréttir Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjá meira