Innlent

Áhorfendur tíu milljónir talsins

Franski náttúrulífssjónvarpsþátturinn Ushuaia Nature verður laugardaginn 13. mars tileinkaður Íslandi. Þátturinn er hálftíma langur og verður sýndur á sjónvarpsstöðinni TF1.

Ferðaskrifstofan Fjallabak vekur athygli á því í tilkynningu að þátturinn nái til um 10 milljóna áhorfenda og fari síðan í sýningu í bæði franskri og enskri útgáfu víða um heim, auk þess sem hann komi út á mynddiski. Þá segir að þættirnir séu góð landkynning. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×