Innlent

Flautað í mótmælaskyni

Frá mótmælum. Mynd úr safni.
Frá mótmælum. Mynd úr safni.

Ökumenn hafa boðað til mótmæla í dag við Íslandsbanka, Kirkjusandi klukkan 12:15 en þaðan mun bílalestin halda að höfuðstöðvum SP Fjármögnunar í Sigtúni. Þá verður farið að Tryggingamiðstöðinni í Síðmúla og svo að Lýsingu í Ármúla. Mótmælunum lýkur svo við Frjálsa Fjárfestingabankann í Lágmúla.

Mótmælendur hyggjast flauta fyrir utan þessa staði í þrjár mínútur. Mótmælendur vilja réttlátar leiðréttingar vegna höfuðstólshækkunar bílasamninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×