Innlent

Gæslan fylgist með gasflutningaskipi

Arctic Princess.
Arctic Princess.

Landhelgisgæslan hefur síðastliðinn sólarhring fylgst með siglingu norska gasflutningaskipsins Arctic Princess. Skipið er 288 metrar að lengd og kom inn í eftirlitskerfi stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar um 100 sjómílur A-af landinu en skipið er á siglingu til Bandaríkjanna. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að skipið hafi ekki siglt inn fyrir íslenska landhelgi en fór næst landi 12 sjómílur af eyjunni Hvalbak sem er austur af landinu.

„Arctic Princess er 121 þúsund tonn að stærð, 288 metrar að lengd, 49 metrar að breidd og ristir rúma 12 metra. Skipið er fjórum sinnum stærra en íslensku varðskipin Týr og Ægir," segir ennfremur.

Skipið var í dag á siglingu suður af Dyrhólaey og ætlaði áhöfn eftirlitsflugvélarinnar Sifjar að reyna að ná myndum af skipinu en flugvélin lendir í Reykjavík í eftirmiðdaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×