Innlent

Allt fullt af síld í Grundarfirði

Allt er nú fullt af síld í Grundarfirði, að sögn vestlenska fréttablaðsins Skessuhorns. Telja heimildarmenn blaðsins að allt að hálf milljón tonn af síld sé þar að finna.

Hafrannsóknaskipið Dröfn hefur verið við mælingar á Breiðafirði og sýnatöku undanfarna daga og hefur nokkrum tonnum verið landað í Grundarfirði og fryst. Skessuhorn segir að síldartorfurnar séu mjög þéttar. Þær nái frá botni að yfirborði og gangan nái inn í Kolgrafarfjörð.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×