Innlent

52.000 króna útgjöld á ári

Venjuleg fjölskylda þarf 100.000 króna heildartekjur til að standa undir hækkunum á bensínverði undanfarið ár. Þetta staðhæfði Ásbjörn Óttarsson, Sjálfstæðisflokki, á Alþingi í gær.

Skattahækkanir um síðustu áramót hefðu hækkað verð á hverjum bensínlítra um 26 krónur. 37 króna hækkun mætti að auki rekja til þróunar á heimsmarkaðsverði. Kostnaðaraukinn af þessum hækkunum fyrir venjulega fjölskyldu væri 52.000 krónur á ári og til að eiga fyrir því þurfi að vinna sér inn 100.000 krónur í heildarlaun. - pg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×