Vara eða samtal 23. mars 2010 04:30 Hannes Óli og Árni Pétur. Mynd ÁA
Á fimmtudaginn frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um áráttur, kenndir og kenjar. Verkið sem ber heitið MARS er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá ÚTGERÐ, Hugmyndahúsi háskólanna, sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af tólf verka röð sem mynda eina heild og verða sýnd í einu lagi í lok desember og verður þá eins konar annáll ársins 2010. Listamönnum Áhugaleikhúss atvinnumanna hefur nýverið verið úthlutað listamannalaunum úr launasjóði sviðslistamanna vegna verkefna sinna en nú í vor mun leikhúsið endurflytja Ódauðlegt verk um stríð og frið. Verkið er nú í vinnslu hópsins en Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld hefur lagt leikhúsinu lið og er í þann mund að semja tónverk undir leiksýninguna sem verður sýnd í Hafnarfjarðarleikhúsinu í maí en fleiri ódauðleg verk eru í undirbúningi. Í tilefni frumsýningar MARS sem verður í hádeginu kl. 12.30 fimmtudaginn 25. mars, mun Áhugaleikhús atvinnumanna sýna fyrsta ársfjórðunginn, JANÚAR, FEBRÚAR og MARS í samfellu það sama kvöld kl. 20 og aftur kl. 21. Leiksýningar Áhugaleikhúss atvinnumanna flokkast ekki undir markaðsvöru heldur samtal og er því ókeypis á alla viðburði leikhússins. Örverk um áráttur, kenndir og kenjar eru öll eftir Steinunni Knútsdóttur í samvinnu við hópinn og unnin undir hennar stjórn. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir. Í JANÚAR leika þær Aðalbjörg Árnadóttir og Ólöf Ingólfsdóttir, í FEBRÚAR leika þeir Árni Pétur Guðjónsson og Hannes Óli Ágústsson, en í MARS Árni Pétur Guðjónsson, Kristjana Skúladóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Myndvinnsla og útsendingar er í höndum Hákonar Más Oddssonar og nema Borgarholtsskóla. - pbb
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira