Innlent

Gylfi bundinn af ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er samkvæmt lögum um bundinn af ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu. Meirihluti nefndarinnar féllst í gær á að kanadíska orkufyrirtækið Magma Energy, megi eiga hlut í HS orku. Kanadamennirnir eiga nú þegar ríflega 40% hlut. Í lögum um takmarkanir á erlendri fjárfestingu segir að aðeins Íslendingar og aðilar af EES svæðinu megi eiga í orkufyrirtækjum, en Kanadamennirnir fjárfesta hér í gegnum sænskt félag.

Fram kemur í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu að Gylfa hafi borist álit nefndarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu að fjárfesting Magma gangi ekki gegn ákvæðum laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Undir þetta álit skrifuðu Unnur G. Kristjánsdóttir formaður, Adolf Berndsen og Sigurður Hannesson. Þau eru fulltrúar Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nefndinni.

Silja Bára Ómarsdóttir og Björk Sigurgeirsdóttir, fulltrúar VG og Borgarahreyfingarinnar, skiluðu aftur á móti séráliti. Þær töldu að fjárfesting Magma væri á gráu svæði. Þær lögðu til að skorið yrði úr um lögmæti kaupa Magma með dómi en að öðrum kosti þyrfti að skýra ásetning löggjafans með nýrri löggjöf.




Tengdar fréttir

Líklegt að kaup Magma verði samþykkt

Nefnd um erlendar fjárfestingar mun að líkindum samþykkja kaup Magma Energy á hlutum í HS orku. Fundur nefndarinnar hófst klukkan tvö.

Nefndin samþykkir fjárfestingu Magma

Nefnd um erlendar fjárfestingar sest á fund klukkan þrjú í dag til að taka ákvörðun um hvort fjárfesting kanadíska félagsins Magma Energy í HS orku, standist ákvæði íslenskra laga. Búist er við því að fundurinn standi í tvær klukkustundir. Fundurinn er framhald af fundi nefndarinnar frá því á föstudag. Þá var búist við því að niðurstaða fengist í málið.

Frestaði ákvörðun um Magma

Nefnd um erlendar fjárfestingar frestaði á fundi sínum í dag, ákvörðun um hvort dótturfélagi kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, væri heimilt að eiga hlut í HS orku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×