Burberry-fyrirsæta stökk út um glugga í Mílanó Tinni Sveinsson skrifar 21. júní 2010 13:51 Samkvæmt vinum hans var Tom þunglyndur eftir sambandsslit við kærustu sína. Hann var 22 ára. Mynd/AFP
Franska fyrirsætan Tom Nicon lést í gær eftir að hann stökk út um glugga íbúðar sinnar í 12 metra hæð í miðborg Mílanó. Hann átti að koma fram á sýningu hjá breska tískuhúsinu Burberry nokkrum klukkustundum seinna en hann var ein aðalfyrirsæta þess. Tískuvikan í Mílanó hófst um kvöldið og voru samstarfsmenn Nicon í áfalli eftir sjálfsvígið. „Við skiljum ekkert í þessu. Tom var með okkur á föstudaginn á búningaæfingu. Hann virtist rólegur. Við bjuggumst ekki við því að hann myndi gera neitt þessu líkt. Þetta var ljúfur drengur," sagði Donatella Versace tískudrottning en auk Versace og Burberry vann Nicon einnig fyrir Louis Vuitton og Hugo Boss. Lögreglan í Mílanó segist rannsaka málið sem sjálfsvíg þar sem vinir Tom sögðu hann niðurbrotinn eftir sambandsslit við kærustu sína. Hafði hann þjáðst af þunglyndi vegna þessa. Tískuheimurinn hefur þurft að glíma við nokkur áföll þessu lík að undanförnu. Breski hönnuðurinn Alexander McQueen framdi sjálfsvíg í febrúar, franska fyrirsætan Noemie Lenoir rétt bjargaðist eftir sjálfsvígstilraun í París fyrir skömmu og suður-kóreska fyrirsætan Daul Kim framdi sjálfsvíg í París í fyrra.
Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna sjóslyss við Ísafjarðardjúp Innlent Agnes Johansen er látin Innlent Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi Innlent Tvær konur sluppu úr brennandi bíl Innlent „Af einhverjum ástæðum er það ávallt Degi B. Eggertssyni að kenna“ Innlent Brúin komin upp við Dugguvog Innlent Vilja fá að hafa áhrif á nærumhverfið og segja „ekki fleiri kassa“ Innlent Reyna sáttaleið eftir að aðalfundi MÍR var aftur hleypt upp Innlent Meirihlutinn á Ísafirði fallinn Innlent Umfangsmikil leit þyrlusveitar og björgunarsveita að fiskibát í nótt Innlent Fleiri fréttir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sjá meira