Innlent

Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu

Kristján Már Unnarsson skrifar

Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu.

Ríkisstjórnin hyggst stækka friðland Þjórsárvera þannig að það nái yfir fyrirhugað Norðlingaöldulón. Náttúruverndarlög heimila umhverfisráðherra að friðlýsa svæði en oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Gunnar Örn Marteinsson, bendir á að friðlýsing þurfi að fara inn á skipulag, og sveitarfélög hafa skipulagsvaldið.

Hann vill þó ekki fullyrða um hvort sveitarfélagið hafi synjunarvald um friðlýsingu. Gunnar Örn kveðst vona að það þurfi ekki að stilla þessu þannig upp að það séu annarsvegar sveitarfélögin og hins vegar ríkið.

„Ég vona að við þurfum ekki að stilla þessu þannig upp, - og menn hljóta að tala sig niður á einhverja skynsamlega lausn í þessu," segir oddvitinn.

Norðlingaölduveita er talin hagkvæmasti virkjunarkostur Landsvirkjunar, sem kosti fimmtán milljarða króna en gefi tvo til og tvo og hálfan miljarð króna í tekjur á ári.

Oddvitinn segir að friðlýsing þurfi ekki að koma í veg fyrir veituna og bendir á að lagt sé til að stærra friðland Þjórsárvera nái yfir hluta af Kvíslaveitum, sem eru manngert svæði. Menn hljóti þar af leiðandi að gera ráð fyrir Kvíslaveitum í friðlandsskilmálum. Á sama hátt verði hægt að hafa Norðlingaölduveitu inni á friðlandi en hennar yrði þá geti í friðlandsskilmálum.

Andstæðingar veitunnar benda á að Kvíslaveitur hafi þegar spillt Þjórsárverum og fossaröðinni fyrir neðan. En þarf þá ekki leggja af Kvíslaveitur?

Gísli Már Gíslason, formaður Þjórsárveranefndar, kveðst ekki ætla að leggja slíkt til og Gunnar Örn oddviti kveðst telja að menn snúi ekki til baka með þá framkvæmd.

Kvíslaveitur taka nú þegar 40 prósent af rennsli fossanna og því má spyrja hvort ekki þyrfti að opna flóðgáttir þeirra hluta úr sumri ef gefa ætti ferðamönnum kost á að sjá Dynk á ný í allri sinni dýrð.

Helsti talsmaður stækkunar friðlandsins vill hins vegar að menn taki Norðlingaölduveitu endanlega af dagskrá, þar sem hún raski svæði sem í rammaáætlun hafi fengið hátt verndargildi.

„Þá lenti þetta í hæstu flokkunum, varðandi náttúruverndargildi, og það er bara verið að raska því með þessu, fyrir tiltölulega litla orku og lítið afl sem fæst með þessu, - þó að það sé ódýrt," segir Gísli Már.












Tengdar fréttir

Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð

Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi.

Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar

Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×