Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Kristján Már Unnarsson skrifar 10. september 2010 17:00
Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. Það virðist ekki deilt um það lengur að Þjórsárver eigi að vernda, fremur er tekist á um það hvort áhrifasvæði Norðlingaölduveitu geti talist til Þjórsárvera. Hér sjáum við fyrirhugað lónsstæði en helmingur þess verður í farvegi Þjórsár. Mest af því sem eftir stendur lítur svona út en um áttatíu prósent þess sem fer undir vatn er skilgreint sem melar og lítt gróið land. Það gróðursvæði sem mest er rætt um að spillist er svokallað Eyvafen, sem við sjáum hér inn í, en oddviti Skeiða- og Gnúpverja, Gunnar Örn Marteinsson, hafnar því að það teljist hluti veranna. Hann kveðst hafa farið þarna oft um og segir að í sínum huga geti Eyvafen ekki talist hluti af Þjórsárverum. Þarna sé Eyvafenslækur og hann sé ekki ver sem slíkt. Vatnamælingamaður Landsvirkjunar, bóndinn á Ásólfsstöðum, segir rangt að lónið sökkvi feninu. "Það er ekki verið að sökkva Eyvafeni," segir Sigurður Páll Ásólfsson. Hann segir Eyvafen fara á kaf á hverjum einasta vetri af náttúrulegum ástæðum, þegar Þjórsá bólgni upp vegna íss og krapa. Það þurfi ekkert lón til að vatn gangi langt inn í Eyvafen. Helsti baráttumaður fyrir því að friðlýsa þetta umdeilda svæði, Gísli Már Gíslason, prófessor og formaður Þjórsárveranefndar, bendir hins vegar á að gróður þarna sé í mikilli framför. Það sé verið að skerða það, - á svæði sem hafi hingað til verið óraskað. Svæðið er þó þegar virkjað með Kvíslaveitum en með þeim voru 40 prósent af rennsli efri Þjórsár flutt til Þórisvatns fyrir aldarfjórðungi. Landsvirkjun vill með Norðlingaöldulóni fá 30 prósent í viðbót af vatni Þjórsár, en Gísli segir nóg komið. Þetta lón sé til viðbótar því sem þegar sé búið að gera og með þessari framkvæmd verði framkvæmdir fluttar vestur fyrir Þjórsá. Þar með sé verið að spilla nýju svæði. Áður hafi verið búið að fallast á að taka svæðið austan Þjórsár gegn því að það yrði á valdi náttúruyfirvalda hvort meira yrði gert og þau hafi verið búin að hafna því.
Tengdar fréttir Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10. september 2010 17:00 Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu. 13. september 2010 10:30 Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10. september 2010 17:00 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira
Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10. september 2010 17:00
Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu. 13. september 2010 10:30
Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10. september 2010 17:00