Innlent

Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi.

Hinn 38 metra hái Dynkur þykir mikilfenglegastur fossanna í Efri-Þjórsá og margir setja hann á stall með Gullfossi og Dettifossi. Neðar er Gljúfurleitarfoss, ekki síður magnaður, 28 metra hár í einu falli, en efstur er Kjálkaversfoss, átta metra hár. Erfitt er að komast að fossunum en auðheyrt er á þeim sem þekkja svæðið að skerðing þeirra yrði sár.

Gunnar Örn Marteinsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir Gljúfurleit vera geysilega fallegt svæði og mikil náttúrufegurð sé í fossunum. Það yrði því mikil eftirsjá ef þeir hyrfu algerlega.

Boðið er upp á þá málamiðlun að halda rennsli fossanna nær óbreyttu yfir sumartímann þegar göngufólk er þarna helst á ferð. En er það ásættanlegt?

Oddvitinn telur að sumir gætu sætt sig við það en ábyggilega ekki allir.

Gísli Már Gíslason, formaður Þjórsárveranefndar, segir að slíkt sé gert víða erlendis en bendir á að þegar sé búið að minnka vatnsmagni í fossaröðinni um helming og þetta yrði þá bara ennþá meiri skerðing.

Þverár sem renna í Þjórsá neðan Norðlingaöldu en ofan Dynks milda skerðinguna. Með Kvíslaveitum er samt sem áður þegar búið að taka 40 prósent af rennsli fossanna og Norðlingaölduveita mun taka 30 prósent til viðbótar.

"Það myndi leiða til þess að þessir fossar yrðu bara einhverjir klettaveggir með litlu vatni," segir Gísli Már.

Vatnamælingamaður Landsvirkjunar á svæðinu, Sigurður Páll Ásólfsson, telur þó að ekki muni sjást mikill munur á fossunum að sumarlagi. Yfir hásumarið myndu menn ekki merkja það.

Hér sjáum við ljósmynd sem sýnir Dynk við 70 rúmmetra rennsli á sekúndu en Sigurður Páll segir að svo lágt færi rennslið ekki yfir sumartímann heldur yrði það líkara þessu og oft mun meira en hér er fossinn í 145 rúmmetrum á sekúndu. Þar sem meginrennsli Dynks er um gljúfur við vesturbakkann hafa helstu áhyggjur vegna minna rennslis væri þær að þá myndi vatnið fyrst minnka af stöllunum austanmegin og svipmót fossins breytast.

Hann segir að það muni auðvitað um að taka allt að 75 rúmmetra af fossunum en af 300-400 rúmmetrum sé það minna en sveifla milli dags og nætur.


Tengdar fréttir

Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar

Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera.

Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu

Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×