Rændir og grýttir í Amsterdam 2. janúar 2010 03:00 Meðlimir Ultra MegaTechnobandsins Stefáns voru rændir í Amsterdam. „
Við vorum með nokkrar evrur til að koma okkur á hótelið og það kemur einhver arabi með gulltönn. Hann segir okkur að fara inn í bílinn.“ Svona hefst ferðasaga Sigurðar Ásgeirs Ásgeirssonar, söngvara Ultra Mega Technobandsins Stefáns, sem kom fram í Amsterdam á dögunum. Lestarkerfið var stopp vegna mikillar snjókomu og Sigurður og félagar stigu því upp í leigubíl sem reyndist vera vafasamur. „Við förum inn, bílstjórinn læsir bílnum og segir að við þurfum að bíða eftir kollega hans,“ segir Sigurður. „Þá segi ég við Arnar: „Það kemur einhver gæi inn og ef hann setur mælinn ekki í gang, þá erum við bara dauðir.“ Svo kemur einhver leðurjakkaklæddur durtur og sest við hliðina á bílstjóranum. Hann var svona þreföld útgáfa af hinum.“ Bíllinn fer af stað og strákarnir í hljómsveitinni sitja skjálfandi af hræðslu aftur í. Bílstjórinn og risinn spjalla saman á óskiljanlegu tungumáli og strákarnir velta fyrir sér hvort þeirra hinsta stund sé runnin upp. „Við veltum fyrir okkur hvort við ættum að hoppa út úr bílnum og héldum að við værum að fara að deyja þarna, í skítugum leigubíl í Amsterdam,“ segir Sigurður. Þeim var svo skutlað á hótelið og rukkaðir um 80 evrur á mann. Evrurnar áttu þeir ekki þannig að glæpamennirnir tóku það litla sem þeir áttu og reyndu að fá þá til að taka meira út úr hraðbanka. „Við náðum einhvern veginn að sannfæra þá um að við værum þrír mestu fávitar jarðkringlunnar og ættum engan pening,“ segir Sigurður. „Við flúðum svo inn á hótel og þeir létu sig hverfa.“ Ekki tók svo skárra við, en þegar strákarnir fóru út af hótelinu og ætluðu að skoða borgina hópaðist fólk saman og grýtti í þá snjóboltum. „Þeir kölluðu okkur helvítis túrista og sögðu okkur að fara heim,“ segir Sigurður. - afb
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Lífið Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira