Erlent

Ætla að ráðast á hjálparstarfsfólk á flóðasvæðunum

Daglegt líf um 20 milljóna manna hefur gengið úr skorðum. Milljónir eru án heimila.
Daglegt líf um 20 milljóna manna hefur gengið úr skorðum. Milljónir eru án heimila. Mynd/AP
Talíbanar hafa í hyggju að ráðast á hjálparstarfsmenn á flóðasvæðunum í Pakistan. Þeir segja veru útlendinga í landinu óásættanlega.

Bandaríkjamenn segjast búa yfir áreiðanlegum upplýsingum um að talíbanar ætli á næstunni að ráðast á erlenda hjálparstarfsmenn á flóðavæðunum. Þeir hafa áður ráðist á hjálparstarfsfólk í Pakistan þar sem þeir sætta sig ekki við nærveru útlendinga í landinu. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir upplýsingar um yfirvofandi árásir teknar alvarlega. Þá segir talsmaður Sameinuðu þjóðanna hótanir um ofbeldi ekki hindra hjálparstarfið þar sem gripið verði til ráðstafna og öryggi hjálparstarfsmanna á flóðasvæðunum verði tryggt.

Rúmar þrjár vikur eru fá því að flóðin hófust í kjölfar úrhellisrigningar. Um 1600 lík hafa fundist og daglegt líf meira en 20 milljóna manna hefur gengið úr skorðum, en um 170 milljónir búa í Pakistan. Talið er að heilu þorpin og um 800 þúsund íbúar hafi orðið innlyksa og þurfi nauðsynlega á aðstoð að halda en flóðin hafa nú náð til um fjórðungs landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×