Sjö umsóknir í forvali nýs Landspítala 15. febrúar 2010 16:35 Frestur til að skila inn umsóknum rann út klukkan tvö í dag.
Alls bárust sjö umsóknir í forvali vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspítala og eru allar stærstu verkfræðistofur landsins meðal þátttakenda. Forvalsnefnd metur nú umsóknirnar og verður tilkynnt eftir viku hvaða teymi öðlast þátttökurétt í hönnunarsamkeppninni. Ábyrgðaraðilar hönnunarteymanna sjö sem skiluðu inn umsóknum í forvalinu eru Mannvit hf., TBL Arkitektar ehf., VSÓ Ráðgjöf, Efla hf., Verkís hf., Almenna verkfræðistofan hf. og Guðjón Bjarnason. Frestur til að skila inn umsóknum rann út klukkan tvö í dag. Engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmd forvalsins þegar niðurstöðurnar voru kynntar í dag en Gunnar Svavarsson, formaður verkefnisstjórnar nýs Landspítala, tilkynnti við það tækifæri að forvalsnefnd verkefnisstjórnarinnar myndi skila niðurstöðum sínum eftir viku, að fram kemur í tilkynningu. Valin verði allt að fimm teymi til þátttöku í hönnunarsamkeppninni og verði keppnislýsingin tilbúin 5. mars næstkomandi. Skilafrestur í hönnunarsamkeppninni er í byrjun júní 2010 og úrslit eiga að liggja fyrir mánuði síðar, eða í byrjun júlímánaðar. Hönnunarsamkeppnin tekur til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut og útfærslu á 66 þúsund fermetra nýbyggingu þar. Áætlað er að framkvæmdir við nýja spítalann geti hafist á síðari hluta árs 2011 og standi fram á árið 2016. Áætlaður kostnaður við nýbygginguna er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Fleiri fréttir „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Sjá meira