Tæknibrellutröll gefur út á vínyl 29. mars 2010 04:00 Glæsileg umgjörð Plata Umma Guðjónssonar er glæsileg, hún er á vínyl en þeir sem eiga ekki plötuspilara geta notast við usb-kubb sem fylgir með. „
Mig langaði bara til að gefa vínyl. Var þetta dýrt? Jú, kannski, en eru ekki sumir með jeppadellu? Þetta var bara eitthvað sem mig langaði til að gera,“ segir Ummi Guðjónsson, tónlistamaður og tæknibrellutröll, sem var að senda frá sér glæsilegan vínyl-pakka. Ekki hefur mikið verið fjallað um tónlistarhæfileika Umma í rúm fjórtán ár, eða síðan hin vinsæla hjómsveit hans, Sólstrandargæjarnir, lagði upp laupana. Hins vegar hefur aðeins meira verið gert úr starfi hans í kvikmyndaheiminum en Ummi hefur unnið við tæknilega útfærslu kvikmynda á borð við Avatar, The Golden Compass og Where the Wild Things Are auk Harry Potter and the Goblet of Fire. Ástæðan fyrir tímasetningu útgáfunnar er ofur einföld, að sögn Umma. „Platan var einfaldlega tilbúin. Ég er búinn að vera dútla mér við þetta undanfarin ár og núna var verkið bara búið. Ég var samt ekkert búinn að ákveða hvort ég ætti að gefa þetta út, en svo lét ég bara vaða,“ útskýrir Ummi. Umslagið er feykilega metnaðarfullt og því fylgir svokallaður usb-kubbur fyrir þá sem ekki eiga plötuspilara. Ummi viðurkennir að þarna hafi blandast saman tónlistin og svo tæknibrelluvinnan. „Ég hafði alveg óskaplega gaman af því að gera þetta,“ segir Ummi. Um þessar mundir er hann að vinna við nýja mynd frá teiknimyndarisanum Pixar sem Andrew Stanton, handritshöfundur Toy Story og leikstjóri mynda á borð við Wall-E og Finding Nemo, er að gera. Ummi segir þetta vera einstakt tækifæri fyrir sig. „Þetta er það sem mig dreymdi alltaf um að gera.“ - fgg
Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira