Erlent

Mannskæð slys í Kína

Í tilkynningu frá samgönguráðuneyti landsins kemur fram að lestin fór út af sporinu eftir að skriða fór yfir járnbrautarteinana.
Í tilkynningu frá samgönguráðuneyti landsins kemur fram að lestin fór út af sporinu eftir að skriða fór yfir járnbrautarteinana. Mynd/AP

32 létust í Kína í dag þegar flutningabíll á röngum vegarhelmingi lenti framan á rútu í Liaoning héraði. Mikill eldur braust út við áreksturinn. Alls létust 29 farþegar rútunnar, en tuttugu og fjórir eru slasaðir, þar af þrír alvarlega. Þeir þrír sem voru í flutningabílnum létust einnig í slysinu. Verið er að rannsaka tildrög slyssins en rútan var á leið frá Tianjin borg skammt frá Peking til Harbin í Helongjiang héraði.

Einungis örfáum klukkutímum fyrr létust að minnsta kosti 19 manns þegar farþegalestlenti í skriðufalli og fór út af sporinu við borgina Fuzhou. Í tilkynningu frá samgönguráðuneyti landsins kemur fram að lestin fór út af sporinu eftir að skriða fór yfir járnbrautarteinana.

Lestin var á leið til Shanghai þar sem heimssýningin EXPO 2010 fer nú fram. Meira en 70 eru slasaðir og þar af 11 alvarlega en á þriðja hundrað farþegar voru um borð í lestinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×