Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Kristján Már Unnarsson skrifar 10. september 2010 17:00
Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi.Hinn 38 metra hái Dynkur þykir mikilfenglegastur fossanna í Efri-Þjórsá og margir setja hann á stall með Gullfossi og Dettifossi. Neðar er Gljúfurleitarfoss, ekki síður magnaður, 28 metra hár í einu falli, en efstur er Kjálkaversfoss, átta metra hár. Erfitt er að komast að fossunum en auðheyrt er á þeim sem þekkja svæðið að skerðing þeirra yrði sár.Gunnar Örn Marteinsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir Gljúfurleit vera geysilega fallegt svæði og mikil náttúrufegurð sé í fossunum. Það yrði því mikil eftirsjá ef þeir hyrfu algerlega.Boðið er upp á þá málamiðlun að halda rennsli fossanna nær óbreyttu yfir sumartímann þegar göngufólk er þarna helst á ferð. En er það ásættanlegt?Oddvitinn telur að sumir gætu sætt sig við það en ábyggilega ekki allir.Gísli Már Gíslason, formaður Þjórsárveranefndar, segir að slíkt sé gert víða erlendis en bendir á að þegar sé búið að minnka vatnsmagni í fossaröðinni um helming og þetta yrði þá bara ennþá meiri skerðing.Þverár sem renna í Þjórsá neðan Norðlingaöldu en ofan Dynks milda skerðinguna. Með Kvíslaveitum er samt sem áður þegar búið að taka 40 prósent af rennsli fossanna og Norðlingaölduveita mun taka 30 prósent til viðbótar."Það myndi leiða til þess að þessir fossar yrðu bara einhverjir klettaveggir með litlu vatni," segir Gísli Már.Vatnamælingamaður Landsvirkjunar á svæðinu, Sigurður Páll Ásólfsson, telur þó að ekki muni sjást mikill munur á fossunum að sumarlagi. Yfir hásumarið myndu menn ekki merkja það.Hér sjáum við ljósmynd sem sýnir Dynk við 70 rúmmetra rennsli á sekúndu en Sigurður Páll segir að svo lágt færi rennslið ekki yfir sumartímann heldur yrði það líkara þessu og oft mun meira en hér er fossinn í 145 rúmmetrum á sekúndu. Þar sem meginrennsli Dynks er um gljúfur við vesturbakkann hafa helstu áhyggjur vegna minna rennslis væri þær að þá myndi vatnið fyrst minnka af stöllunum austanmegin og svipmót fossins breytast.Hann segir að það muni auðvitað um að taka allt að 75 rúmmetra af fossunum en af 300-400 rúmmetrum sé það minna en sveifla milli dags og nætur.
Tengdar fréttir Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10. september 2010 17:00 Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu. 13. september 2010 10:30 Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10. september 2010 17:00 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira
Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10. september 2010 17:00
Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu. 13. september 2010 10:30
Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10. september 2010 17:00