Innlent

Lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðs verkfalls

Mynd/Teitur Jónasson

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðra verkfallsaðgerða íslenskra flugumferðarstjóra. Ef verkfallsaðgerðir þessar koma til framkvæmda munu þær trufla alvarlega flug til og frá landinu með miklum skaða fyrir flugfélög og ferðaþjónustuna í heild, að mati samtakanna.

Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boða til vinnustöðvunar félagsmanna sinna dagana 10. mars til 19. mars, alls fimm sinnum í fjórar klukkustundir samfellt í hvert skipti.

Samtök ferðaþjónustunnar skora á samningsaðila að ná niðurstöðu áður en til verkfalls kemur þar sem miklir hagsmunir eru í húfi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×