Erlent

Fjölskylda sprengjumannsins flúin

Óli Tynes skrifar
Lors Doukaiev.
Lors Doukaiev. Mynd/Danska lögreglan

Fjölskylda sprengjumannsins í Danmörku virðist vera í felum. Móðir og systir Lors Doukaiev bjuggu með honum í Belgíu.

Doukaiev var skráður til heimilis með móður sinni og talið er að systirin hafi einnig búið í sömu íbúð.

Belgiska lögreglan vill gjarnan hafa tal af mæðgunum til þess að fá nánari upplýsingar um Doukaiev. En þær finnast hvergi.

Danska blaðið Politiken hefur eftir heimildum að þær hafi yfirgefið heimilið í miklu hasti og ekki sést síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×