Innlent

Allir samningarnir í lagi

Ragnhildur Erla Bjarnadóttir
Ragnhildur Erla Bjarnadóttir
Allir samningar milli leikskólasviðs Reykjavíkur og skóla Hjallastefnu Margrétar Pálu Ólafsdóttur eru í lagi og enginn ágreiningur um þá. Þetta segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri sviðsins.

Hinn 8. febrúar birtist í blaðinu viðtal við þau Margréti og Ragnar Sæ Ragnarsson, starfandi formann leikskólaráðs. Þar sagði Margrét það dapurlegt að yfir 120 börn væru á biðlista á meðan hún hefði hátt í þrjátíu laus pláss.

Þegar þetta var borið undir Ragnar Sæ sagðist hann ekki skilja að hverju Margrét Pála væri að „ýja“. Hún hlyti þá að vera að brjóta samninga.

Ragnhildur segir að Margrét Pála sé með rekstrarleyfi fyrir 162 börn og þau pláss séu fullnýtt af borginni. Ef Margrét geti tekið við fleiri börnum þurfi hún að fá leyfi fyrir þeim fyrst.

Margrét Pála segir að þetta sé einmitt það sem hún gagnrýni. Leyfin hvíli á samþykki sveitarfélagsins og hangi því saman við plássin. Hátt í þrjátíu slík hafi verið laus í allan vetur, með vitund borgarinnar:

„Við erum með tómar stofur og auð fatahólf, með leyfum allra eftirlitsaðila, en borgin hvorki semur um né gefur leyfi fyrir fleiri börnum. Við vitum að efnahagsástandið er slæmt og stjórnum ekki borginni, en við hittum foreldrana sem bíða.“ - kóþ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×