Forseti Maldíveyja heimsækir Ísland 11. mars 2010 11:02 Í október á síðasta ári boðaði Nasheed til ríkisstjórnarfundar á hafsbotni. Það gerði hann til að vekja athygli á áhrifum lofslagsbreytinganna á Maldíveyjar. Mynd/AFP
Forseti Maldíveyja Mohamed Nasheed heimsækir Ísland á föstudag og laugardag til að kynna sér nýtingu hreinnar orku og sjávarútveg ásamt því að halda opinberan fyrirlestur um loftslagsbreytingar en hækkun sjávarborðs ógnar efnahagslífi landsins og sjálfri tilveru þjóðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu. Heimsóknin var ákveðin á fundi forseta Maldíveyja með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Heimsþingi hreinnar orku sem haldið var í Abu Dhabi í janúar. Forseti Maldíveyja mun eiga fund með Ólafi Ragnari á Bessastöðum á morgun. Þá mun Nasheed eiga fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.Hélt hann ríkisstjórnarfund á hafsbotni Laugardaginn klukkan 13:15 mun Nasheed halda fyrirlestur í Öskju í boði forseta Íslands og Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn, sem opinn er öllum almenningi, fjallar um hættuna sem stafar af loftslagsbreytingum og ber heitið „Maldives: Fighting climate change from the frontline“. Nasheed hefur á undanförnum árum vakið heimsathygli fyrir baráttu sína gegn loftslagsbreytingum. Fyrir nokkrum mánuðum hélt hann ríkisstjórnarfund á hafsbotni til að vekja athygli heimsbyggðarinnar á að Maldíveyjar gætu sokkið í sæ vegna bráðnunar íss og jökla, meðal annars á norðurslóðum.Kynntar rannsóknir á íslenskum og grænlenskum jöklum Þá munu forseti Maldíveyja og fylgdarlið hans sitja kynningarfundi um orkumál, sjávarútveg og bráðnun jökla á Íslandi og Grænlandi. Fjallað verður um nýtingu hreinnar orku á fundi í Hellisheiðarvirkjun þar sem forystumenn í orkumálum og sérfræðingar munu flytja erindi. Þá verður haldinn fundur um sjávarútvegsmál í Hafrannsóknarstofnuninni þar sem sérfræðingar í sjávarútvegi munu kynna árangur Íslendinga. Íslenskir jöklafræðingar og náttúruvísindamenn munu svo kynna forsetanum rannsóknir á íslenskum og grænlenskum jöklum og á hafstraumum á norðurslóðum. Sú kynning fer fram í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Í fylgdarliði Nasheed eru meðal annars dr. Ahmed Shaheed utanríkisráðherra, embættismenn og sérfræðingar í alþjóðamálum.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Sjá meira