Enski boltinn

Carragher: Portsmouth hafa engu að tapa

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Jamie Carragher
Jamie Carragher Nordic photos/AFP
Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, hefur varað liðsfélaga sína við því að vanmeta ekki lið Portsmouth þegar liðin mætast n.k. mánudagskvöld í ensku úrvaldsdeildinni.

Liverpool-liðið hefur spilað hörmulega í síðustu leikjum og tapaði liðið tveimur síðustu leikjum sínum, gegn Wigan og Lille.

„Að Portsmouth skuli sitja þarna á botninum í deildinni er ótrúlegt, það bjóst enginn við þessu í upphafi tímabils. Þeir eiga fullt af leikmönnum sem eru góðir og það verður erfitt að mæta þeim," sagði Jamie Carragher við blaðið LFC Weekly.

Carragher segir að vandamál bæði innan og utan vallar hjá Portsmouth geti styrkt leikmenn og sambönd þeirra á milli.

„Leikmennirnir þeirra munu örugglega færast nær hvor öðrum og styrkjast. Þeir hafa engu að tapa," sagði Carragher að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×