Innlent

Skautadrottningu komið undir læknishendur

Stúlka um tvítugt brenndist á hendi þegar yfir hana helltist heitt vatn í íbúð í Breiðholti í hádeginu í gær samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hún var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar.

Það var svo um kaffileytið sem ung skautadrotting sem var á æfingu í Laugardal datt og fékk hún skurð á hökuna. Henni var sömuleiðis komið undir læknishendur.

Og í nótt var kona á miðjum aldri flutt á slysadeild eftir að hafa dottið illa í heimahúsi í Breiðholti en óttast var að hún hefði farið úr axlarlið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×