Erlent

Hatoyama segir af sér embætti

Sat aðeins átta mánuði í embætti.
Sat aðeins átta mánuði í embætti. fréttablaðið/AP
Japan, AP Yukio Hatoyama, forsætisráðherra Japans, sagði af sér í gær eftir aðeins átta mánaða setu í embættinu. Afsögn hans gæti lamað japönsk stjórnmál eða leitt til stjórnarskipta.

Ástæður afsagnarinnar sagði hann bæði fjármögnunarhneyksli og umdeilda ákvörðun sína um að leyfa bandaríska hernum að vera áfram með herstöð á Okinawa, þvert ofan í loforð sín í kosningabaráttunni.

Hann viðurkenndi að hann hefði glatað trausti þjóðarinnar.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×