Leiddur fyrir aftökusveit í Utah 18. júní 2010 12:35 MYND/AP
Bandaríkjamaðurinn Ronnie Lee Gardner var í nótt tekinn af lífi í Utah ríki. Hann var skotinn til bana af aftökusveit. Gardner var 49 ára gamall og hann hafði dvalið á dauðadeild í 25 ár fyrir að myrða lögfræðing árið 1985 þegar hann reyndi að flýja úr dómshúsi í Utah þar sem réttað var yfir honum vegna annars morðs. Hann var leiddur fyrir aftökusveit og skotinn en fimm sjálfboðaliðar úr lögreglunni framkvæmdu aftökuna. Slík aftökuaðferð hefur ekki verið notuð í 14 ár í Bandaríkunum og var Gardner þriðji maðurinn sem tekinn er af lífi með þessum hætti frá árinu 1976. Í Utah ríki var aðferðin bönnuð árið 2004 en áður en það var gert hafði Gardner valið þessa aðferð umfram eitursprautuna sem venjulega er notuð. Af þeim níu sem sitja á dauðadeildinni í Utah og geta valið um aftökuaðferð hafa fjórir kosið að láta skjóta sig. Rifflar lögreglumannanna voru hlaðnir með 30 kalíbera kúlum en einn riffillinn var með púðurskoti. Það er gert til þess að enginn þeirra geti vitað með vissu að þeir hafi í raun tekið manninn af lífi. Gardner var síðan bundinn í stól og skotinn af tæplega átta metra færi. Síðasta degi sínum eyddi Gardner í að horfa á bíómyndirnar gerðar eftir Hringadróttinssögu. Síðasta kvöldmáltíð hans samanstóð af steik og humri og í eftirrétt fékk hann eplaböku með ís.
Mest lesið Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Innlent Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Innlent Herflugvél snúið við í neyð Innlent Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Innlent „Mér brá við að sjá þessa tölu“ Innlent „Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk“ Innlent Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Innlent Hótar að ganga úr Evrópusamningi til að svipta útlendinga ríkisfangi Erlent MAST búið að snúa hnífnum Innlent Karlmaður handtekinn í tengslum við mannslát Innlent Fleiri fréttir Fundu spjótsodda alsetta gulli mörghundruð árum eldri en talið var mögulegt Á fjórða hundrað gripa orðið fyrir vatnstjóni á Louvre Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi „Samrýmist að miklu leyti okkar sýn“ Árleg tannlæknaheimsókn á brúsa danska ríkisins Handtekinn á Heathrow eftir árás með piparúða Hótar að ganga úr Evrópusamningi til að svipta útlendinga ríkisfangi Hermenn reyna að ræna völdum í Benín Tuttugu og fimm fórust þegar skemmtistaður brann til kaldra kola Sambandið við Rússland og siðrof í Evrópu í forgangi Á fjórða tug barna drepin í drónaárás á leikskóla Hvelfingin um Tsjernobyl-verið stöðvar ekki kjarnorkugeislun Telja Evrópu traðka niður andóf gegn Úkraínustríðinu Ferðabannið útvíkkað frá tólf ríkjum í yfir þrjátíu Óþekktir drónar stefndu á vél Selenskí við Írland Vellinum í Edinborg lokað um stund og seinkanir mögulegar Norðmenn kaupa langdræg vopn og kafbáta fyrir milljarða Biðla til Belga en tvær tillögur á borðinu Endurheimtu verðmætt hálsmenið úr þörmum þjófsins Óheimilt að skjóta niður ólöglega dróna nema af þeim stafi hætta Krefja Farage um heiðarleika og afsökunarbeiðni Færeyingar rýmka verulega lög um þungunarrof Annað hvort hörfi Úkraínumenn eða verði hraktir burt með valdi Handtóku sprengjumann eftir nærri því fimm ára leit Ógnaði öryggi hermanna með Signal-spjalli Vöruðu við því að Bandaríkin gætu svikið Úkraínu og Evrópu Telja Pútín siðferðislega ábyrgan fyrir dauða breskrar konu Dæmdur í fangelsi fyrir að selja Perry ketamín Leggja fram áætlun um haldlagningu frystra sjóða Rússa Braust inn í vínbúð og „drapst“ á klósettinu Sjá meira