Hraunið fossar niður í Hrunagil 31. mars 2010 12:06 Gosið á Fimmvörðuhálsi. Mynd/ Anton.
Mikið hraunrennsli hefur verið niður í Hrunagil í morgun frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi og sjást miklar gufusprengingar reglulega ofan í gilinu sem senda stóra gufubólstra hátt til himins. Mikill kraftur er enn í gosinu. Hraunrennsli frá gígnum hefur reyndar verið bæði niður í Hvannárgil og Hrunagil en síðustu klukkustundir mun meira niður í Hrunagil en þaðan stíga nú upp miklir gufubólstrar hátt til himins. Þar niðri sjást sprengingar af og til og er greinilegt að aska er einnig í bólstrunum. Fólk þarf því að gæta varúðar á gilbörmunum því það hefur sýnt sig að sprengingarnar geta sent stóra hraunhnullunga upp úr giljunum, og umferð inn í þau úr Þórsmörk er bönnuð vegna eiturhættu. Töluvertur kraftur er í gosinu og gígurinn þeytir enn myndarlegum gosstrókum yfir eitthundrað metra til himins. Gosstrókarnir eru nú vart nema einn til tveir talsins, en fyrir helgi voru þeir fjórir til fimm og fyrstu gosdaginn tólf til fjórtán. Upphaflega gossprungan er þanng að mestu búin að breytast í einn til tvo gíga sem þegar hafa byggt upp yfir 200 metra hátt fjall. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur sagði í morgun að gosið hefði haldið sama krafti síðustu daga eftir að örlítið dró úr því á mánudag. Í sama streng tók Gunnar Guðmundsson jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni nú laust fyrir hádegi. Skjálftarnir nú væru eitthvað færri en á fyrstu dögum gossins og minni gosórói en hann væri þó stöðugur. Þess má geta að þau Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur munu á fræðslukvöldi Ferðafélags Íslands í kvöld fjalla ítarlega um eldgosið á Fimmvörðuhálsi og spá í líklega framvindu gossins. Fræðslukvöldið verður í Mörkinni 6 í Reykjavík og hefst kl 20.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira