Henning Mankell var um borð í einu skipanna 31. maí 2010 12:01 Henning Mankell.
Sænski glæpasagnahöfundurinn Henning Mankell var um borð í einu skipanna sem ísraelski herinn stöðvaði í nótt þegar skipin voru á leið með hjálpargögn á Gaza. Þetta staðfestir talsmaður Mankells sem segist ekki hafa náð í hann síðan árásin var gerð. Sænska ríkisstjórnin kallaði sendiherra Ísraels á sinn fund í morgun þar sem krafist var skýringa á árásinni sem Svíar segja fullkomlega óafsakanlega. Skipalest með um tíuþúsund tonn af hjálpargögnum sigldi frá Kýpur áleiðis til Ísrael en til stóð að dreifa hjálpargögnunm á Gaza svæðinu. Ísraelar höfðu lýst því yfir að skipin fengju ekki að koma til hafnar og stóðu við það. Sérsveitir ísraelska hersins fóru í nótt um borð í stærsta skipið og tóku það yfir. Í átökum sem upp blossuðu á milli áhafnar og hermanna féllu að minnsta kosti 19 áhafnarmeðlimir. Ísraelar segjast hafa verið að verja sig en talsmenn samtaka um frelsun Gaza, sem stóðu að baki skipalestinni, segja að Ísraelar hafi brugðist allt of hart við og þeir neita því að fólkið um borð í skipinu hafi gripið til ofbeldis. Ísraelski flotinn hefur nú tekið yfir öll skipin og verður þeim siglt til hafnar í Ashdod þar sem fólkinu verður skipað frá borði. Að því loknu verður hjálpargögnunum komið til gaza að sögn. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu hefur fordæmt framferði ísraela í málinu og talað um blóðbað. Flestir áhafnarmeðlima voru Tyrkir og í Ístanbúl hafa þúsundir mótmælt við sendiráð Ísraels. Árásin kemur á viðkvæmum tíma fyrir ísraelsk stjórnvöld en til stóð að Barack Obama bandaríkjaforseti myndi hitta Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísrael í Washington. Netanyahu hefur nú snúið heim á leið.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Sleginn í andlitið með hnúajárni Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll Sjá meira