600 þúsund manns náðu í Íslandsmyndbandið 4. júní 2010 11:26
Inspired by Iceland markaðsherferðin, sem hófst fyrir rúmum tveimur vikum, náði nýjum hæðum í gær í átakinu „Þjóðin býður heim" en gær höfðu að minnsta kosti ein og hálf milljón smáskilaboða verið send og fimm milljónir Twitter skilaboða. Almenningur hefur verið hvattur til að senda vinum, fjölskyldu og viðskiptafélögum erlendis myndband sem ætlað er að veita fólki innblástur og hvetja til ferðalaga til Íslands. Óhætt er að fullyrða að myndbandið hafi slegið í gegn en í gær höfðu 600 þúsund manns hlaðið myndbandinu niður og í allt höfðu 870 þúsund manns hlaðið niður myndböndum af Inspired-vefsíðunni. Twitter sendingar sem Björk og Yoko Ono áttu heiðurinn að vógu þyngst í þeirri tölu og að auki hafði Inspired by Iceland Facebook-síðan eignast 17 þúsund vini. Ljóst er að þessi fjöldi mun aukast nú um helgina þegar fleiri og fleiri viðtakendur munu opna póstinn sinn og póstsendingar halda áfram því að umfjöllun um átakið erlendis er að skila sér. „Ljóst er að mikill áhugi er erlendis fyrir átakinu en um það bil 125 mikilvægir bloggarar hafa fjallað um það þ.m.t. Josh Spear sem talinn er ein mikilvægasta röddin á netinu skv. New York Times. Umfjöllun um þjóðarátakið sjálft var síðan birt víða í miðlum í Evrópu, Ástralíu og Bandaríkjunum í gær," segir í tilkynningu. „Framundan eru áframhaldandi póstsendingar, birtingar auglýsinga í erlendum blöðum og vefmiðlum, einnig blaðamannaheimsóknir og hvatning til erlendra ferðamanna sem komnir eru til landsins til þess að deila ferðasögum sínum á vefnum ásamt tónlistarviðburði seinna í sumar undir formerkjum Inspired by Iceland," segir ennfremur. Aðstandendur átaksins eru að vonum ánægðir með hvernig til tókst og þakka frábærar viðtökur íslensku þjóðarinnar og vonast til þess að fólk haldi áfram að senda þó að þjóðarátaksdeginum sé formlega lokið. Að markaðsátakinu Inspired by Iceland standa iðnaðarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Útflutningsráð, Samtök ferðaþjónustunnar (yfir 70 fyrirtæki), Icelandair og Iceland Express.
Mest lesið „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Bein útsending: Lögð af stað til tunglsins Erlent Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Innlent Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Innlent Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Innlent Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Innlent Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Vilja fá valdið aftur Innlent Fleiri fréttir „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Sjá meira