Hypjið ykkur burt af hótelinu Óli Tynes skrifar 22. september 2010 15:07 Í Auglýsingum er Golden Beach sagt vera lítið vingjarnlegt hótel.
Golden Beach hótelið í Blackpool í Englandi er að verða heimsfrægt. Eigendunum til sárrar skapraunar. Hótelið er nefnilega að verða frægt fyrir að reka krabbameinssjúkan gest og kærustu hans á dyr, eftir að hótelstjórinn sakaði þau um neikvæð skrif á ferðasíðu á netinu. Blaðið USA Today er einn margra fjölmiðla um allan heim sem segja frá þeim Adrian Healey og Sherrie Andrews. Þau eru bæði 33 ára gömul. Fyrir einu og hálfu ári greindist Adrian með krabbamein. Ekki hrifin af Golden Beach Fyrr í þessum mánuði ákváðu þau að halda uppá að Adrian hafði lokið lyfjameðferð sinni með því að fara í þriggja daga frí til Blackpool sem er vinsæll strandbær rétt norðvestan við Manchester. Adrian og Sherrie voru ekkert sérlega hrifin af hótelinu. Og þau voru ekki ein um það. Á ferðavefsíðunni TripAdvisor eru 167 umsagnir um Golden Beach. Fimmtíu og níu prósent skrifenda mæla ekki með hótelinu. Hringdi í lögregluna Það næsta sem þau vissu var að hótelstjórinn kom æðandi inn í herbergið þeirra og sagði þeim að hypja sig fyrir niðrandi skrif um hótelið. Hann hefði þegar hringt í lögregluna til að bera þau út ef þau færu ekki með góðu. Lögreglan mætti svo á staðinn. Þeim var svo brugðið að þau samþykktu bara að fara. Þau áttu eina nótt eftir sem þau höfðu borgað fyrir og fóru fram á endurgreiðslu. Því var hafnað. Neitar að svara spurningum Lögreglan staðfesti í samtali við staðarblaðið Blackpool Gazette að hún hefði verið kölluð á hótelið. Talsmaður lögreglunnar sagði að parið hefði ekkert gert af sér en að hótelstjórinn hefði viljað losna við þau af eigninni. Lögreglumennirnir hefðu gefið þeim ráð um hvernig þau gætu sótt endurgreiðslu. Hótelstjórnin neitaði að svara spurningum Blackpool Gazette um málið. En frægð hans mun berast víða.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira