Innlent

Erlendar listakonur hópast á Skagaströnd

Mannlífið á Skagaströnd hefur tekið stakkaskiptum eftir að útlendar listakonur tóku að hópast þangað tugum saman til langdvalar. Líf og fjör hefur færst í Kántríbæ.

Það er ótrúlegt en satt en á Skagaströnd, sem byggðist upp á sjávarútvegi, finnst ekki lengur nein fiskvinnsla. Vinnsluhúsin standa eftir tóm. Eða hvað?

Þegar betur er að gáð, þá er búið að breyta einu þeirra í alþjóðlega listamiðstöð. Þar sem áður var flakaður fiskur eru nú listamenn úr öllum heimshornum að störfum, að jafnaði tíu talsins hverju sinni, mánuð í senn. Landið trekkir að og þykir listamönnunum það bjóða upp á skapandi umhverfi fyrir listina.

Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarkona átti hugmyndina, Byggðastofnun lagði til húsið og sveitarfélagið lagði í púkkið. Frá því starfsemin hófst fyrir nærri tveimur árum hafa 170 manns komið, og aldeilis kryddað mannlífið.

Ólafía Lárusdóttir, verkefnisstjórni Nes listamiðstöðvar, segir að listafólkið versli í búðinni, það fari í Kántríbæ,- það séu allskyns uppákomur og þau séu dugleg að mæta til dæmis á þorrablótin. Þetta skili sér í auðugra mannlífi og hafi lífgað mjög upp á sveitarfélagið.

Orðspor listamiðstöðvarinnar berst út meðal listamanna um heiminn og afskekkt pláss undir heimskautsbaug um hávetur hræðir þá ekki frá því að koma. Listamennirnir búa í nokkrum íbúðum í bænum og greiða um 100 þúsund krónur fyrir aðstöðuna.

Við tökum eftir því að þetta eru aðallega stúlkur sem mæta. Ólafía segir að þær séu í miklum meirihluta og veltir því upp hvort þær séu ævintýragjarnari en strákarnir. Það þurfi ef til vill að fara að hvetja stráka til að sækja um.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×