Tvísýnt um endurreisnaráætlun Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. janúar 2010 00:01 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svara spurningum fjölmiðla eftir ríkisstjórnarfund í stjórnarráðinu í hádeginu í gær. Þau lýstu vonbrigðum ríkisstjórnarinnar með þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að skrifa ekki undir Icesave-lögin. Fréttablaðið/GVA „
Með ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki breytingu Alþingis á lögum nr. 96/2009, svokölluðum Icesave-lögum er þeim árangri sem náðst hefur í endurreisnaráætlun stjórnvalda teflt í mikla tvísýnu,“ segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynntu yfirlýsinguna á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu í gær, eftir að forsetinn hafði fyrr um morguninn upplýst um ákvörðun sína. „Ríkisstjórn Íslands lýsir vonbrigðum með ákvörðun forseta og í ljósi þeirra alvarlegu áhrifa sem synjun forseta Íslands kann að hafa mun ríkisstjórnin nú meta stöðu mála og horfur varðandi þá endurreisnaráætlun sem hún hefur fylgt með góðum árangri,“ segir í yfirlýsingunni. Vísað er til þess að í viljayfirlýsingu stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna efnahagsáætlunarinnar sem undirrituð var í nóvember 2008 sé því heitið að Icesave-málið verði leitt til lykta með samningum. Slíkir samningar eru sagðir ein forsenda lánveitinga frá sjóðnum, auk þess sem lyktir málsins hafi verið forsenda fyrir lánafyrirgreiðslu af hálfu Norðurlandanna. „Án þessara lána er fjármögnun efnahagsáætlunarinnar ótrygg og framhald hennar óvisst.“ Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja hana leggja áherslu á að ekki megi draga upp þá mynd gagnvart umheiminum að Ísland ætli að hlaupast frá skuldbindingum sínum, en um hádegisbil sendi stjórnin frá sér tilkynningu þar að lútandi til erlendra miðla. Ríkisstjórnin gagnrýnir í yfirlýsingu sinni ákvörðun forsetans og segir áhöld um hvort það sé pólitískt og stjórnskipulega eðlilegt að forseti beiti málskotsrétti sínum þegar um sé að ræða milliríkjamál, líkt og Icesave-málið sé. „Stjórnvöld hafa kappkostað að eyða allri slíkri óvissu og leitast við að skapa traust í garð þjóðarinnar. Óvissa eða uppnám í fjármálalegum samskiptum við önnur ríki getur haft ófyrirsjáanlegar, víðtækar og mjög skaðlegar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag.“
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira