Innlent

Íslenska sveitin kemur heim í kvöld

Íslenska rústabjörgunarsveitin hefur lokið störfum á hamfarasvæðinu á Haítí og flaug í gær til Bahama-eyja. Þaðan mun sveitin síðan halda til Íslands og er áætlað að hópurinn komi til landsins í kvöld.

Ákveðið var að skilja hluta af hjálpargögnum sveitarinnar eftir á Haítí vegna þess að ekki var talið forsvaranlegt að taka svo mikilvæg gögn með heim á meðan aðstæður eru enn jafnslæmar og raun ber vitni.

Gögnin eru samtals um tíu milljóna króna virði og hafa sveitirnar hafa þeirra sjálfar. Þetta eru meðal annars uppblásin tjöld, rafstöðvar, borð og bekkir, beddar og eldhúsáhöld. Tjöldin eru langdýrust, kosta um fimm milljónir, og hafa íslensk stjórnvöld þegar ákveðið að styrkja sveitina við kaup á nýjum tjöldum.

Á Bahama-eyjum geta meðlimir sveitarinnar hvílst í tíu til tólf klukkustundir og hafið áfallahjálparferlið áður en haldið verður heim á leið.

Skelfing greip um sig á Haítí í gær þegar öflugur eftirskjálfti reið yfir landið. Tjónið var þó ekki mikið og engum úr íslensku sveitinni, sem þá var sofandi í bækistöðvum sínum á flugvellinum, varð meint af. - sh /








Fleiri fréttir

Sjá meira


×