Kyrrstaða í London 4. mars 2010 06:00
Ágreiningur um kostnað Breta og Hollendinga af fjármögnun vegna greiðslu lágmarkstrygginga reikningseigenda stendur í veginum fyrir samningum um lausn Icesave-málsins. Heimildir Fréttablaðsins herma að Bretar og Hollendingar hafi sæst á hugmyndir Íslendinga um lausn. Í þeim felst að Íslendingar greiði höfuðstól lánsins og fjármögnunarkostnað. Deilan snýst um hve hár sá kostnaður er. Talsvert ber í milli, eftir því sem heimildarmenn segja, en bilið sé ekki óbrúanlegt. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vill ekki staðfesta þetta. Hann segir ótímabært að ræða innihald viðræðnanna. Ljóst er að vonbrigða gætir í herbúðum stjórnarliða með að ekki hafi þokast nær samkomulagi á fundi samninganefndanna í London í gær. „Staðan skýrðist ekki að ráði og það er enn ekkert á borðinu sem gefur tilefni til mikillar bjartsýni um að þetta muni klárast á næstunni," sagði Steingrímur í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Samninganefndirnar funduðu í húsakynnum lögmannsstofunnar Slaughter and May sem er bresku viðræðunefndinni til ráðgjafar. „Fundurinn fór fram í mikilli vinsemd og var mjög gagnlegur," var það eina sem Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu vildi segja í gærkvöldi. Guðmundur er einn fimm samningamanna Íslands. Íslenska nefndin sat yfir útreikningum fram á kvöld í gær en hún nýtur ráðgjafar bresku lögmannastofunnar Ashurst. Allar líkur eru á að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram á laugardag. Í henni verður kosið um gildi laga sem Alþingi samþykkti 30. desember. Kjör samninganna sem þar liggja til grundvallar eru talsvert lakari en Bretar og Hollendingar hafa nú boðið upp á. Í röðum stjórnarflokkanna er talið mikilvægt að samkomulag - eða í það minnsta drög að samkomulagi - verði undirritað síðar í dag eða á morgun. Á þeim bæjum er það talin mikil fjárhagsleg áhætta að málið sitji enn fast þegar lögin verða felld á laugardag, eins og skoðanakannanir sýna ótvírætt. Formenn stjórnarflokkanna kynntu stöðu málsins fyrir þingflokkum sínum síðdegis í gær. - bþs, kóp
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira