Tugþúsundir flýja átök í Kirgisistan 14. júní 2010 02:00 Úsbeskar konur og börn við landamæri Kirgisistans og Úsbekistans. 75 þúsund Úsbekar hafa flúið yfir til Úsbekistans og þar hafa verið settar upp tímabundnar flóttamannabúðir. fréttablaðið/ap
Kirgisistan, ap Um 100 manns hafa látið lífið og að minnsta kosti þúsund hafa særst í átökum í Kirgisistan undanfarna daga. Þá hafa um 75 þúsund Úsbeka þurft að flýja yfir landamærin til Úsbekistan, mest eldra fólk, konur og börn. Átökin, sem hófust á fimmtudag, voru upphaflega tilraun til að grafa undan bráðabirgðastjórn landsins. Stjórnin hefur setið við völd síðan Kurmanbek Bakiyev, forseti landsins, var gerður útlægur í apríl. Úsbekar, sem eru minnihlutahópur í landinu, hafa stutt bráðabirgðastjórnina en margir Kirgisar í suðurhluta landsins hafa stutt forsetann útlæga. Stjórnin hefur sakað forsetann um að standa að baki óeirðunum, en hann hefur neitað því. Átökin hafa verið mest í borginni Osh og nálægum þorpum, en dreifðust til borgarinnar Jalal-Abad í gær. Sjónarvottar segja vopnaða hópa Kirgisa fara um í Osh og skjóta á Úsbeka af handahófi. Þá hefur stór hluti borgarinnar verið lagður í rúst í eldsvoðum. Kveikt hefur verið í heilu þorpunum í nágrenni borgarinnar. Þá hefur hópur Úsbeka eyðilagt fjölda bíla og tekið fjölmarga Kirgisa í gíslingu, auk þess sem lögreglustjóri var drepinn í einu þorpinu. Stjórnvöld hafa gefið öryggissveitum leyfi til að skjóta á vopnuðu hópana. Sameinuðu þjóðirnar auk Bandaríkjamanna og Rússa hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins í landinu. Bæði Bandaríkjamenn og Rússar hafa herstöðvar í norðurhluta landsins en hafa ekki skipt sér af átökunum. Rússar hafa neitað beiðnum stjórnarinnar um aðstoð en sendu í gær liðsauka til þess að verja herstöð sína. Bandaríkjamenn hafa ekki verið beðnir um aðstoð vegna óeirðanna en hafa hjálpað til við að koma matvælum til flóttamanna. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira